The Bourne Identity
prev.
play.
mark.
next.

1:38:02
Hvaða lið er það?
1:38:03
Þú veist ekkert hvað þú ert að gera,
er það nokkuð?

1:38:07
Hver er ég?
1:38:08
Þú ert eign Bandaríkjastjórnar!
1:38:10
Þú ert bilað 30 milljón dala vopn!
1:38:14
Þú ert stórslys!
1:38:16
Þó það verði minn bani,
skaltu segja mér hvað gerðist.

1:38:19
- Því viljið þið drepa mig?
- Hvað gerðist í Marseille?

1:38:22
Þú sendir mig til að drepa Wombosi.
1:38:24
Drepa Wombosi?
Við getum gert það hvenær sem er.

1:38:27
Ég gæti sent Nicky til þess,
fjandinn hafi það.

1:38:30
Wombosi átti að vera dauður
fyrir þremur vikum.

1:38:33
Það átti að líta svo út að eina skýringin væri
1:38:37
að hans eigin fylgdarmenn
hefðu drepið hann.

1:38:40
Ég sendi þig ekki til að drepa,
1:38:42
heldur til að vera ósýnilegan.
1:38:43
Því þú ert ekki til.
1:38:46
Segðu mér hvað gerðist í Marseille.
1:38:48
Ég man ekki hvað gerðist þar.
1:38:51
Kjaftæði! Það er ótækt, hermaður.
1:38:53
Heyrirðu það? Þér mistókst!
1:38:55
- Ótækt?
- Þér mistókst!

1:38:56
- Og þú skalt útskýra hvers vegna!
- Ég sagði þér það! Ég man það ekki!

1:39:00
Þú lífgaðir Kane við.
Þú komst á fundi við Wombosi,

1:39:03
fannst öryggisfyrirtækið
og braust inn á skrifstofuna!

1:39:06
Þú valdir meira að segja snekkjuna
sem árásarstað!

1:39:17
Þú valdir bátinn.
1:39:18
Þú valdir daginn. Útvegaðir áhöfn.
1:39:21
Mat, eldsneyti!
1:39:23
Þú sagðir okkur hvar og hvenær.
1:39:26
Þú faldir þig um borð í fimm daga.
1:39:29
Þú varst á áætlun, Jason!
1:39:31
Verkið var klárt!

prev.
next.