Casablanca
prev.
play.
mark.
next.

1:20:00
Tvær línur í blaðinu:
1:20:01
"Victor Laszlo handtekinn.
Sendur til fangabúða."

1:20:05
Ég var viti mínu fjær
og frétti ekkert í marga mániuði.

1:20:08
Síðan kom það.
1:20:09
Hann var dáinn.
Skotinn þegar hann reyndi að flýja.

1:20:12
Ég var einmana. Ég átti ekkert,
jafnvel ekki vonina.

1:20:16
Þá kynntist ég þér.
1:20:18
Af hverju varstu ekki hreinskilin?
Þú leyndir því að þú værir gift.

1:20:21
Það var ekki leyndarmál mitt.
Victor vildi að svo væri.

1:20:24
Jafnvel nánustu vinir okkar
vissu ekki af því.

1:20:27
Þannig verndaði hann mig.
Ég vissi af störfum hans.

1:20:30
Ef Gestapo kæmist að því að ég væri
konan hans yrði ég í hættu...

1:20:33
...og líka þeir sem ynnu fyrir okkur.
1:20:35
Hvenær komstu að því
að hann var lifandi?

1:20:39
Rétt áður en þú og ég
ætluðum að fara frá París.

1:20:41
Vinur minn kom og sagði mér
að Victor væri á lífi.

1:20:44
Hann var falinn í flutningabíl
í útjaðri Parísar.

1:20:47
Hann var veikur og þarfnaðist mín.
1:20:51
Ég vildi segja þér það
en þorði það ekki.

1:20:53
Ég vissi að þú hefðir ekki farið
og Gestapo hefði náð þér...

1:21:00
Þú veist afganginn.
1:21:05
Það vantar enn endinn á söguna.
1:21:08
Hvað gerist nú?
1:21:10
Nú?
1:21:12
Ég veit það ekki.
1:21:14
Ég veit að ég hef ekki mátt
til að fara aftur frá þér.

1:21:18
En Laszlo?
1:21:19
Hjálparðu honum ekki núna?
Þú sérð um að hann fari.

1:21:22
Þá hefur hann vinnu sína.
Allt sem hann lifir fyrir.

1:21:26
Allt nema eitt.
1:21:29
Hann hefur ekki þig.
1:21:32
Ég get ekki lengur
barist gegn þessu.

1:21:35
Ég flýði þig einu sinni.
Ég get það ekki aftur.

1:21:41
Ég veit ekki lengur hvað er rétt.
1:21:44
Þú verður að hugsa
fyrir okkur bæði.

1:21:47
Fyrir okkur öll.
1:21:51
Gott og vel.
1:21:53
Ég geri það.
1:21:58
Þína skál, stelpa.

prev.
next.